

Verðskrá
Leitast er við að veita skjóta og vandaða þjónustu á sanngjörnu verði. Í prófarkalestri má reikna með því að hægt sé að fara yfir 10-12 þúsund orð á dag, eftir erfiðleika og umfangi texta. Ef yfirferð á heimildaskráningu er keypt til viðbótar við prófarkalestur þarf ekki að gera ráð fyrir meiri tíma.
Hafðu samband í textaboxinu hér að neðan, í tölvupósti eða á facebook til að fá tilboð í verkið!

Prófarkalestur
Verð ræðst af fjölda orða og erfiðleika texta m.t.t. málfars- og stafsetningarvillna. Taxtinn er á bilinu 2,5-3,5 krónur per orð.
Best er að hafa samband
til að fá tilboð í verkið.
Lágmarksverð fyrir prófarkalestur er
15.000 krónur óháð orðafjölda.

Yfirferð á heimildaskráningu (APA 7)
Ég tek að mér yfirferð á heimildaskráningu í ritgerðum í samræmi við APA 7 heimildakerfið. Farið yfir að vísað sé í heimildir með réttum hætti, heimildir séu rétt útlistaðar í heimildaskrá og að uppsetning á heimildaskrá sé rétt.
Verð miðast við orðafjölda ritgerðar og er
2 krónur per orð. Lágmarksverð fyrir yfirferð á heimildaskráningu er 10.000 krónur óháð orðafjölda.
Ath. Einungis í boði til viðbótar við prófarkalestur, ekki ein og sér.

Þýðingar
Verð stjórnast alfarið af umfangi og eðli verks.
Því er einungis hægt að fá verðtilboð með því að hafa samband.