


Þjónusta
Innifalið í prófarkalestri er yfirferð og leiðréttingar á prent-, stafsetningar-, málfars- og málfræðilegum villum auk leiðréttinga á setningauppbyggingu. Þá er textinn einnig yfirfarinn með tilliti til innihalds og leitast við að merking texta sé skýr og skilmerkileg.
Einnig boðið upp á yfirferð á heimildaskráningu samkvæmt APA 7 kerfinu, sjá nánar undir verðskrá.
Tek einnig að mér þýðingar úr íslensku yfir á ensku og öfugt.
Umsagnir
„Fáguð og vönduð vinnubrögð Kristínar skiluðu sér í gæðamun á lokaritgerð minni. Enskukunnátta hennar og skilningur á uppsetningu og heimildarskráningu var frábær til að vera ekki dreginn niður fyrir óefnisleg atriði. Án hennar hefði ég því aldrei staðið mig jafn vel og mæli þvi hiklaust með henni fyrir allan prófarkalestur. Kristín gerði hana frá góðri yfir í frábæra ritgerð og gerði herslumuninn sem skilaði mér mínum verðlaunum fyrir ritgerðina. Það er alveg á hreinu!“
Unnar Karl Jónsson
MSc í Banking and Finance
King's College London
hlaut verðlaun fyrir bestu lokaritgerð
Súsanna Helgadóttir
MSc í Mannauðsstjórnun
Háskóli Íslands
„Kristín las yfir meistararitgerðina mína vorið 2021. Hún er nákvæm og með gott auga fyrir smáatriðum og mjög gott að vinna með henni. Hún kom með gagnlegar ábendingar á málfari, orðafari og uppsetningu á ritgerðinni og ég var mjög sátt með útkomuna. Ég mæli hiklaust með Kristínu sem yfirlesara og hún fær mín allra bestu meðmæli.“
„Ég leitaði til Kristínar fyrir prófarkarlestur á meistararitgerð minni í verkfræði með áherslu á vöruþróun og nýsköpun. Eftir þrotlausa vinnu í marga mánuði var ómetanlegt að vera með Kristínu til taks á hliðarlínunni enda skín í gegn hvað hún hefur mikla reynslu og þekkingu á sínu sviði. Hún kom með virkilega gagnlegar ábendingar varðandi uppsetningu og málfar, og var alltaf til taks að svara spurningum. Ég fékk 12 í einkunn á dönskum mælikvarða fyrir ritgerðina og á Kristínu mikið að þakka, 10/10 hiklaust!“
Sigrún Dís Hauksdóttir
MSc í verkfræði með áherslu á vöruþróun og nýsköpun
Háskólinn í Suður-Danmörku (SDU)
Áralöng reynsla af prófarkalestri.
Sinnti hlutverki aðstoðarkennara í áfanga um ritgerðarskrif og heimildaskráningu í HÍ í 2 ár samhliða grunnnámi (Vinnulag í sálfræði).
Stundaði framhaldsnám á Íslandi (MSc í klínískri sálfræði, Háskóli Íslands) og síðar í Bretlandi (MSc í félags-og menningarsálfræði, London School of Economics). Var búsett í Bretlandi um árabil og hef mikla reynslu af akademískum skrifum og yfirferð á ensku.
Um mig
Ég hef prófarkalesið ritgerðir og verkefni
á ensku og íslensku, á öllum skólastigum
og í fjölmörgum greinum, svo sem sálfræði, lögfræði, sagnfræði, markaðsfræði, viðskiptafræði, hagfræði o.s.frv.